Ógn: ráðgátan um Dísar-Svan

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 200 1.790 kr.
spinner

Ógn: ráðgátan um Dísar-Svan

1.790 kr.

ÓGN-fors
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 200 1.790 kr.
spinner

Um bókina

Amma heldur því fram að álfar séu til og segir barnabörnunum sögur úr álfheimum. Svandís trúir ekki á álfa en þegar dularfull skilaboð berast henni er hún ekki lengur viss í sinni sök. Hvað ef álfheimar eru til og leynast jafnvel í klettunum fyrir ofan bæinn?

Svandís er fjórtán ára stelpa sem flytur úr borginni norður í land. Þar eignast hún vinina Brján og Sylvíu en saknar vinkonu sinnar Láru og getur ekki beðið eftir að hún komi í heimsókn í jólafríinu. Í kringum Svandísi er margt einkennilegt á kreiki. Köttur með rauð augu, dularfullir hestar og fólk sem ef til vill er annað en það sýnist vera. Hún flækist inn í baráttu góðs og ills, kynnist ástinni og þarf ásamt vinum sínum að glíma við ógurlegar kynjaskepnur.

Ógn – ráðgátan um Dísar-Svan, er æsispennandi ævintýrasaga sem höfðar til ungmenna á öllum aldri. Sagan byggir á þjóðsagnaarfi Íslendinga og tengir höfundur, Hrund Hlöðversdóttir, saman tvo heima, raunheima sem við þekkjum öll og hulduheima sem færri þekkja.

 

Tengdar bækur

Original price was: 2.290 kr..Current price is: 1.290 kr..
6.390 kr.
Original price was: 2.690 kr..Current price is: 2.190 kr..
Original price was: 1.790 kr..Current price is: 990 kr..
Original price was: 3.390 kr..Current price is: 2.499 kr..
Original price was: 4.790 kr..Current price is: 1.499 kr..
Original price was: 2.490 kr..Current price is: 1.590 kr..
3.990 kr.5.990 kr.

INNskráning

Nýskráning