Hefnd Diddu Morthens
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2025 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
| Kilja | 2025 | 132 | 4.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Hljóðbók - streymi | 2025 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
| Kilja | 2025 | 132 | 4.290 kr. |
Um bókina
„Stundum læt ég mér detta í hug að prófa eitthvað nýtt. Ég hef verið í bókaklúbbi, stundað Zumba, gengið á fjöll og farið í sjósund. Ekkert af þessu höfðar sérstaklega til mín en það hefur verið skárra að hafa eitthvað við að vera. Eitthvað til að dreifa huganum.“
Starfsferill Diddu Morthens er að engu orðinn, börnin löngu farin að heiman og eiginmaðurinn er úrvinda öll kvöld. Hún hangir í tölvunni til að drepa tímann og dag einn býr hún til gervimenni á netinu til að hefna sín á gamalli bekkjarsystur. Atlagan heppnast svo vel að Didda ræðst í flóknari aðgerðir sem krefjast einbeitts brotavilja.
Sprenghlægileg saga sem bar sigur úr býtum í Nýjum röddum, handritasamkeppni Forlagsins.
Sigríður Pétursdóttir er kvikmyndafræðingur og vann lengst af hjá RÚV við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hefnd Diddu Morthens er fyrsta skáldsaga hennar.













3 umsagnir um Hefnd Diddu Morthens
Fanney Benjaminsdottir –
„Persónan … er mjög skemmtileg kona og trúverður, og hæfilega skrítin og hæfilega óþolandi. En líka mjög elskuleg … Skemmtileg lýsing á nútímalífi … Þess virði að kynna sér.”
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Fanney Benjaminsdottir –
„Gáskafullt verk sem gleður hjartað … Didda kemur eins og ferskur andblær inn í bókmenntasenu sumarsins.”
Sjöfn Asare / Lestrarklefinn
Fanney Benjaminsdottir –
„Bráðskemmtileg frumraun … skemmtileg, meinfyndin og hæfilega spennandi.”
Ragna Gestsdóttir / DV