Rósa og Björk: Hildur #2
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Kilja | 2025 | 373 | 4.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Kilja | 2025 | 373 | 4.290 kr. |
Um bókina
Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur lögreglukonunnar Hildar, sem hurfu fyrir vestan árið 1994? Í öll þau ár sem liðin eru hefur ekkert til þeirra spurst en nú er Hildur loks komin á spor sem gæti leitt hana áleiðis að lausn gátunnar. Það þarf samt kjark til að horfast í augu við fortíðina …
Lögreglulífið á Ísafirði er líka allt annað en rólegt og lítill tími til að sinna öðru. Einn af máttarstólpum bæjarins, athafnamaður sem situr í sveitarstjórn, er skotinn til bana uppi í fjalli og Hildur og félagar eru ráðþrota. Hinn myrti var umdeildur, tókst á við pólitíska andstæðinga og einkalífið var skrautlegt svo að ýmsir gætu hafa viljað hann feigan. Og um götur Reykjavíkur reikar manneskja sem á harma að hefna.
Satu Rämö hefur slegið í gegn með bókunum um hina vestfirsku Hildi. Satu er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Glæpasögur hennar hafa selst í bílförmum í Finnlandi, Þýskalandi og víðar. Sú fyrsta, Hildur, varð metsölubók hér heima – Rósa og Björk er æsispennandi framhald.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.















2 umsagnir um Rósa og Björk: Hildur #2
Fanney Benjaminsdottir –
Sagan er spennandi og mörgum steinum er velt við áður en lausnin liggur fyrir … Fjölskyldusaga Hildar er átakanleg, en jafnframt sérlega vel gerð og lýsandi … Höfundur býr til eftirminnilega frásögn af heimilislífi, mismunandi lífsbaráttu, fátækt, auði og valdi, og tengir brotin saman í góða heild.
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið
Jón Gunnarsson –
„Rósa og Björk er eins og bestu glæpasögurnar; bæði grípandi og spennandi og nánast er hægt að lesa bókina í einni setu. Hildur endaði á mjög spennandi nótum varðandi hvarf systranna í fyrri bók og því var ég spennt að fá þessa bók í hendurnar þar sem titillinn gaf til kynna að loks kæmi niðurstaða í hvarfið. Ég var ekki svikin í þeim efnum og fannst sá hluti sögunnar sérstaklega spennandi og óvæntur. ”
Sæunn Gísladóttir / Lestrarklefinn