Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Lettinn Pietr
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 184 | 4.090 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 184 | 4.090 kr. |
Um bókina
Lögregluforinginn Maigret fær tilkynningu frá Interpol um að alræmdur svikari, sem gengur undir nafninu Lettinn Pietr, sé á leið til Frakklands. Maigret fær ítarlega lýsingu á útliti hans og ætlar að handtaka hann á lestarstöð við París. En þegar þangað kemur reynast æði margir samsvara lýsingunni á Lettanum Pietr.
Hver er hann í raun og veru? Og hvað vakir fyrir honum í París?
Í þessari fyrstu bók Simenons í bókaflokknum fræga um Maigret reynir sannarlega á innsæi franska lögregluforingjans við að komast að sannleikanum um hinn dularfulla Lettann Pietr.
Belgíski rithöfundurinn Georges Simenon (19031989) hóf rithöfundaferil sinn í París um tvítugt. Hann sló í gegn með bókum sínum um Maigret en alls skrifaði hann rúmlega 400 skáldsögur.












Umsagnir
Engar umsagnir komnar