Þú sem ert á jörðu
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2025 | 216 | 4.890 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Kilja | 2026 | 216 | 4.490 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2025 | 216 | 4.890 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. | ||
| Kilja | 2026 | 216 | 4.490 kr. |
Um bókina
„Smám saman brá dagrenning birtu á landslagið. Að baki þeim rann jökullinn til sjávar og snæviþaktar þúfur vörpuðu löngum skuggum undir fannhvítum fjallshlíðum. Manneskjan gekk um þennan svarthvíta heim í skærlitum dúnjakka og með rauða púlku í eftirdragi. Á eftir henni tölti hundurinn í nokkuð hófsamari litbrigðum“
Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.
Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.












7 umsagnir um Þú sem ert á jörðu
Jón Gunnarsson –
„Það eiga allir að lesa þessa bók, þetta er bókin sem við viljum að allir lesi og hugsi um.“
Ragnheiður Birgisdóttir / Morgunblaðið
Jón Gunnarsson –
„Besta frumraunin, besta bók ársns, besta skáldsaga ársins. Mestur þungi, mest undir, það er heill heimur undir í þessari bók.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Fanney Benjaminsdottir –
„Það er heimsendaþema í þessu jólabókaflóði og endurspeglar kannski óvissu samtímans. Fáar íslenskar vísindaskáldsögur hafa komið jafn skemmtilega á óvart og þessi frumraun Nínu Ólafsdóttur sem gefur alveg nýjan tón fyrir þessa bókmenntagrein hér á landi. Nína skrifar fallegan prósa og þetta er virkilega vel útpæld, spennandi skáldsaga.“
Jóhannes Ólafsson / RÚV
Fanney Benjaminsdottir –
„Geysilega vel gert … brillíant slaufa í lokin … skrifuð af mikilli stílfimi.”
Egill Helgason / Kiljan
Fanney Benjaminsdottir –
„Þessi bók er uppgötvun. Það er mjög óvanalegt að lesa fyrstu bók höfundar sem er jafn sláandi og vel gerð … Þetta er ótrúlega sterk bók … ”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Fanney Benjaminsdottir –
„Þú sem ert á jörðu gleypti mig algjörlega. Töfrandi textinn og stórbrotið umhverfið hélt manni við efnið á þann hátt að erfitt var að leggja bókina frá sér … einstaklega sterk og metnaðarfull frumraun …”
„Textinn sogaði mig gjörsamlega inn í sig, eins og einhver galdur byggi að baki. Skrifin eru virkilega vönduð, frásögnin er svo tær og ljóðræn á köflum að maður undrar sig á því að þetta sé fyrsta skáldsaga höfundar.”
Rebekka Sif Stefánsdóttir / Lestrarklefinn
Fanney Benjaminsdottir –
„Það er eiginlega hálfótrúlegt að þetta sé fyrsta skáldsaga Nínu. Vinnubrögðin eru svo öguð og stíllinn þroskaður. Hugað er að hverju smáatriði sem gerir það að verkum að heimurinn sem höfundurinn teiknar upp er virkilega trúverðugur … Nína hefur lesandann gjörsamlega á valdi sínu bókina á enda og segir áhrifaríka sögu sem lifir lengi með honum.”
Ragneiður Birgisdóttir / Morgunblaðið