Skraparotsnóttin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2026 - 2.990 kr.
spinner
Kilja 2025 585 4.490 kr.
spinner

Skraparotsnóttin

2.990 kr.4.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Rafbók 2026 - 2.990 kr.
spinner
Kilja 2025 585 4.490 kr.
spinner

Um bókina

Noregur er hernuminn af Þjóðverjum sem sölsa undir sig gamla prestssetrið á Bútanga. Systkinin Tarald og Astrid Hekne bregðast á ólíkan hátt við ástandinu, hann er hallur undir Þjóðverja en Astrid, sem líkist ömmu sinni og nöfnu æ meira, gengur í andspyrnuhreyfinguna.

Þetta eru miklir hættutímar og hinn aldni séra Kai Schweigaard og Astrid finna styrk hvort hjá öðru í baráttunni gegn óvininum. Þau þekkja vel spádóma hins dularfulla og forna Hekneteppis sem segja meðal annars til um endalok síðasta prestsins á Bútanga og frá Skraparotsnóttinni, sjálfum dómsdegi.

Skraparotsnóttin er stórkostleg örlagasaga um norskt sveitasamfélag á stríðstímum. Með bókinni lýkur Lars Mytting, einn vinsælasti höfundur Norðmanna, magnaðri sögu Hekneættarinnar.
Bækurnar hafa hlotið geysigóðar viðtökur víða um heim og fjöldamargar viðurkenningar. Fyrri bindin tvö, Systraklukkurnar og Heknevefurinn, hafa verið afar vinsæl meðal íslenskra lesenda sem fá nú sögulokin í frábærri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Skraparotsnóttin”

Tengdar bækur

2.990 kr.4.290 kr.
Systraklukkurnar
2.990 kr.3.690 kr.
Synt með þeim sem drukkna
990 kr.3.490 kr.

INNskráning

Nýskráning