Sanna sagan um nefið á Gosa

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 637 4.390 kr.
spinner

Sanna sagan um nefið á Gosa

4.390 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 637 4.390 kr.
spinner

Um bókina

Sanna sagan um nefið á Gosa er syndsamlegt ævintýri fyrir fullorðin börn. Ef ekki hefði notið við Nikulásar II, síðasta Rússakeisara, Winstons Churchill, Vladímírs Pútín og Everts Bäckström, lögregluforingja í Stokkhólmi, hefðu atburðir þessarar skáldsögu aldrei gerst. Í þeim skilningi er þetta saga um afleiðingar gjörða fjögurra manna á yfir hundrað ára tímabili þar sem sá elsti var ráðinn af dögum fjörutíu árum áður en sá yngsti fæddist. Og eins og svo oft áður, óháð því í hvaða félagsskap eða samhengi hann er staddur er það enginn annar en Bäckström sem bindur enda á söguna.

Tilnefnd til hinna virtu CWA International Dagger-verðlauna í Bretlandi.

Sanna sagan um nefið á Gosa er þriðja bókin í seríunni skemmtilegu um litla, feita og fordómafulla letihauginn Evert Bäckström lögregluforingja sem með einhverjum óskiljanlegum hætti tekst jafnan að skjóta kollegum sínum ref fyrir rass.

Jón Þ. Þór íslenskaði.

Bækur sænska verðlaunahöfundarins Leifs GW Persson hafa verið þýddar á yfir þrjátiu tungumál og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.

„Hraðinn, fléttan og ekki síst lýsingin á lögreglustörfunum verður til þess að þessar rúmlega 600 síður fljúga áfram.“ Svenska Dagbladet

„Persson í hörkuformi … Biksvört og snjöll skemmtun.“ Dagsavisen

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Sanna sagan um nefið á Gosa”

Tengdar bækur

4.090 kr.
linda eða lindumorðið
3.690 kr.
2.290 kr.
4.590 kr.
4.390 kr.
2.390 kr.
3.490 kr.
3.590 kr.
1.999 kr.
7.690 kr.
2.790 kr.

INNskráning

Nýskráning