Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
175 Ísland
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 175 | 6.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 175 | 6.290 kr. |
Um bókina
175 Ísland: Áfangastaðir í alfaraleið er einhver alvinsælasta ferðahandbók sem út hefur komið hér á landi enda sérlega skemmtilegur og fróðlegur vegvísir. Bókin hefur margsinnis verið endurprentuð frá því hún kom fyrst út árið 2008 og reglulega endurskoðuð í samræmi við breytingar á áfangastöðunum og ferðaháttum landsmanna. Í fyrstu útgáfu var vísað á 101 áfangastað, síðan hafa margir bæst við og allnokkrir dottið út – hér eru áfangastaðirnir því 175 talsins, þar af 14 sem ekki hefur áður verið lýst.
Ýmist er lesandinn leiddur á staði sem hafa verið á fárra vitorði eða sýndar eru nýjar hliðar á vinsælum áfangastöðum. Bókin opnar ferðalöngum sýn á náttúru landsins og furður hennar og bregður ljósi á þjóðarsöguna og sérkenni þjóðarsálarinnar.
Páll Ásgeir Ásgeirsson er landskunnur fararstjóri, útivistarmaður og ferðabókahöfundur. Eftir hann eru m.a. bækurnar Hálendishandbókin, Gönguleiðir, Útivistarbókin, Bíll og bakpoki og Hornstrandir.























Umsagnir
Engar umsagnir komnar