Yesteryear: Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 401 4.790 kr.
✓
spinner

Yesteryear: Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum

4.790 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 401 4.790 kr.
✓
spinner

Um bókina

„Ég heiti Natalie Heller Mills og ég hef skapað mér hið fullkomna líf.“ Natalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi – og fylgjendur hennar eru grænir af öfund. Heillandi sveitabærinn á búgarðinum hennar er í vel skipulagðri óreiðu, eiginmaðurinn myndarlegur kúreki og hvert heimabakaða súrdeigsbrauðið öðru girnilegra. Hvað með það þótt barnfóstrur, framleiðendur og nýtísku heimilistæki leynist á bak við tjöldin? Milljónir fylgjenda trúa á hið fullkomna líf hennar. Það sem þeir vita ekki getur ekki skaðað þá.
En einn daginn vaknar Natalie í undarlegri og skelfilegri útgáfu af veruleikanum. Heimilið, eiginmaðurinn, börnin – allt er kunnuglegt en samt ekki eins og það á að vera. Er þetta hrekkur? Raunveruleikaþáttur? Prófraun frá Guði?
Natalie veit aðeins tvennt með vissu: Þetta er ekki fullkomna lífið hennar og hún verður að komast undan – sama hvað það kostar.
Yesteryear er kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina.
Caro Claire Burke sló samstundis í gegn þegar Yesteryear kom út vorið 2026. Þessi fyrsta skáldsaga hennar varð metsölubók á svipstundu og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim.
Ingunn Snædal íslenskaði.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Yesteryear: Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum”

Tengdar bækur

Original price was: 4.590 kr..Current price is: 1.799 kr..
3.990 kr.
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.990 kr..
990 kr. – 1.990 kr.
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 2.999 kr..
6.990 kr.

INNskráning

Nýskráning