Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Yesteryear: Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 401 | 4.790 kr. |
Yesteryear: Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum
4.790 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Bæta á óskalista
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 401 | 4.790 kr. |
Um bókina
„Ég heiti Natalie Heller Mills og ég hef skapað mér hið fullkomna líf.“ Natalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi – og fylgjendur hennar eru grænir af öfund. Heillandi sveitabærinn á búgarðinum hennar er í vel skipulagðri óreiðu, eiginmaðurinn myndarlegur kúreki og hvert heimabakaða súrdeigsbrauðið öðru girnilegra. Hvað með það þótt barnfóstrur, framleiðendur og nýtísku heimilistæki leynist á bak við tjöldin? Milljónir fylgjenda trúa á hið fullkomna líf hennar. Það sem þeir vita ekki getur ekki skaðað þá.
En einn daginn vaknar Natalie í undarlegri og skelfilegri útgáfu af veruleikanum. Heimilið, eiginmaðurinn, börnin – allt er kunnuglegt en samt ekki eins og það á að vera. Er þetta hrekkur? Raunveruleikaþáttur? Prófraun frá Guði?
Natalie veit aðeins tvennt með vissu: Þetta er ekki fullkomna lífið hennar og hún verður að komast undan – sama hvað það kostar.
Yesteryear er kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina.
Caro Claire Burke sló samstundis í gegn þegar Yesteryear kom út vorið 2026. Þessi fyrsta skáldsaga hennar varð metsölubók á svipstundu og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim.
Ingunn Snædal íslenskaði.












Umsagnir
Engar umsagnir komnar