Jólabókaflóðið í Hálöndunum
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 365 | 4.090 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 365 | 4.090 kr. |
Um bókina
Mirren Sutherland er stödd í ævagömlum kastala með turnspírum, fjórum bókasöfnum og dularfullu völundarhúsi. Landið er komið í vetrarbúninginn fyrir jólin og ungur, laglegur landeigandi hefur ráðið hana til að finna dýrgrip sem liggur falinn einhvers staðar á landareigninni.
Hvað með það þótt kastalinn megi muna fífil sinn fegri, sé næstum að hruni kominn og enginn virðist dvelja þar lengur nema hinn alvarlegi, áhyggjufulli Jamie McKinnon og ráðskona hans? Og hvað með það þótt dökk óveðursský hrannist upp út við sjóndeildarhringinn og hafið ýfist? Eða að hún sé símalaus og örlítið smeyk við drauga? Skítt með það sömuleiðis að Theo Palliser með dökka hárið og dimmu augun, sem fór svo kæruleysislegum höndum um hjarta hennar fyrir ári, sé einnig mættur í sömu erindagjörðum. Mirren ætlar að njóta þess að vera víðs fjarri slabbinu og veseninu í London, litlu hljóðbæru holunni sem þar flokkast sem íbúð og vinnunni sem hún er löngu komin með leiða á. Hún ætlar að hunsa daðurslegt augnaráð bóksaladurtsins, grúska í fortíð McKinnon-ættarinnar og leysa ráðgátuna sem lögð hefur verið fyrir þau.
Já, Mirren ætlar sér þetta allt en skoski veturinn og forlögin hafa lag á því að þyrla öllum áætlunum mannfólksins í loft upp.
Sjálfstætt framhald af Jólabókarleitinni eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar