
Sigrún sýnir í safni ASÍ
Sýning á verkum Sigrúnar Eldjárn verður opnuð í Listasafni ASÍ nk. laugardag kl. 15. Sýningin ber yfirskriftina TEIKNIVÍSINDI – SJÖ NÍU ÞRETTÁN og er hún ákveðinn óður til blýantsins. Stórum og smáum teikningum er teflt saman í salnum. Þær eru frásagnakenndar en þó frjálsar og óháðar, gerðar á sínum eigin forsendum. Myndirnar raðast saman og…














