Hugsar þú um heilsuna?

Bókin Bragð í baráttunni hefur vakið verðskuldaða athygli en nú í desember heldur Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein, nýtt námskeið þar sem bókin er kynnt og þátttakendum kennt að nota sér hana á fjölbreyttan hátt.

Námskeiðið fer fram í Skógarhlíð 8, miðvikudaginn 2. desember milli kl. 17-19 en leiðbeinandi er listakokkurinn Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka).

Skráning er hafin á kraftur@kraftur.org. Námskeiðsgjald er 1.000 kr sem er fyrir hráefniskostnaði og gefst þátttakendum kostur á að kaupa bókina á tilboðsverði.

INNskráning

Nýskráning