Hallgrímur Helgason

„Sprengjuárás á karlmennskuna“

Skáldsaga Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, hefur verið verðlaunuð í Frakklandi og valin best á Spáni undanfarin misseri.

Skáldsaga Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, hefur nú komið út á 7 erlendum tungumálum, og er væntanleg á þremur í viðbót. Á seinni hluta síðasta árs kom hún út á frönsku, spænsku og pólsku og var vel tekið í öllum þessum löndum.

Í Frakklandi kom bókin út hjá Presses de la Cité forlaginu í París í þýðingu Jean-Christophe Salaün. Stórblaðið Le Monde kallaði bókina „magnaðan doðrant” og Le Figaro lýsti henni sem „íslenskri sprengju sem sprengir bæði persónu og lesendur í loft upp”. Paris Match sagði bókina „ómótstæðilega” og Le Point lýsir henni sem „600 síðum fullum af húmor, tilfinningum og djúpri umfjöllun um harmræn örlög kvenna”. Þá valdi bókmenntasíðan lirelirelire.com Konuna við 1000° sem bestu skáldsögu haustvertíðarinnar.

Í árlegu vali franskra bóksala var sagan valin ein af tíu bestu erlendu skáldsögum ársins en hana var einnig að finna á lista hins virta bókmenntatímarits Lire yfir þrjár bestu erlendu skáldsögur ársins 2013. Í lok nóvember tók Hallgrímur síðan við Prix Millepages, verðlaunum Millepages bókabúðarinnar í París, sem veitt voru fyrir bestu erlendu skáldsögu haustvertíðarinnar.

Á Spáni kom bókin út hjá Mondadori forlaginu í þýðingu Enrique Bernardez Sanchís. Stórblaðið El Periodico í Barcelona skrifaði „Helgason heillar með aldraðri femínistabombu” undir fyrirsögninni: „Sprengjuárás á karlmennskuna”. Bókmenntatímaritið Leer lýsti höfundinum sem „háðskum og beittum, gáfuðum og huguðum” og síleska blaðið La Tercera spurði hvers vegna 600 síðna íslensk skáldsaga væri þýdd á spænsku í miðri kreppu og svaraði: „Vegna þess að hún er frábær.” Þá valdi hin virta bókmenntasíða todoliteratura.es bókina sem þá bestu sem út kom á spænska málsvæðinu árið 2013.

Í Póllandi kom bókin út hjá Znak forlaginu í Kraká og fékk góðar viðtökur hjá lesendum og gagnrýnendum. Tu-czytam vefsíðan sagði bókina „5 stjörnu lesningu” og frægasta sjónvarpskona Póllands, Maria Czubaszek, lét hafa eftir sér á kápu bókarinnar: „Bókin byrjar vel, sem er gott. En verður svo betri, sem er öllu verra, því eftir það getur maður ekki slitið sig frá henni.”

Við óskum Hallgrími innilega til hamingju með þessa frábæru dóma!

INNskráning

Nýskráning