Megas

Til hamingju Megas!

Síðastliðinn sunnudag var Megas gerður að heiðursfélaga Félags tónskálda og textasmiða. Við hjá Forlaginu óskum Megasi innilega til hamingju með viðurkenninguna. Þetta er í raun staðfesting á því sem við vissum flest; Megas er einn merkilegasti og áhrifamesti tónlistarmaður Íslandssögunnar. Af þessu tilefni lét Jakob Frímann Magnússon, stjórnarformaður FTT, þessi orð falla: „Um leið og við sæmum Megas gullmerki FTT og gerum hann að heiðursfélaga Félags tónskálda og textahöfunda þökkum við honum ómetanlegt framlag hans til íslenskrar orð- og tónlistar. Stétt okkar er mikill sómi að slíkum andans jöfrum.“

Rétt er að benda á að heildarsafn texta Megasar, sem naut gífurlegra vinsælda í fyrra, er nú fáanlegt á ný – nú með áritaðri mynd af meistaranum.

INNskráning

Nýskráning