Til lukku, Tóti!

Þórarinn Leifsson hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir bók sína Bókasafn ömmu Huldar. Verðlaunin voru veitt í 38.  sinn í dag og afhenti Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri Þórarni þau við hátíðlega athöfn í Höfða. Í umsögn dómnefndar um bók hans segir meðal annars:  „Þórarni Leifssyni hefur tekist að semja vel uppbyggða, frumlega, skemmtilega og ekki síst fræðandi sögu.“  Til óskum Tóta hjartanlega til hamingju með verðlaunin.

INNskráning

Nýskráning