Á vora tungu

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 424 5.890 kr.
spinner

Á vora tungu

5.890 kr.

Á vora tungu
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 424 5.890 kr.
spinner

Um bókina

Kristján Árnason, fv. prófessor við Háskóla Íslands, varð sjötugur 26. desember 2016. Þetta rit er gefið út honum til heiðurs í tilefni afmælis hans og starfsloka.

Bókin hefur að geyma úrval tímaritsgreina og bókarkafla eftir hann, 21 talsins. Um er að ræða efni sem birst hefur undanfarna þrjá til fjóra áratugi á ýmsum vettvangi, á Íslandi og erlendis. Fengur er að því að fá efnið nú samantekið í einu riti. Kristján hefur áður gefið út viðamiklar bækur, einkum um hljóðkerfi og bragfræði, en þessi bók fyllir inn í heildarmynd af rannsóknum hans. Jafnframt hefur Kristján nú bætt við inngangskafla þar sem hann setur efnið í samhengi og segir frá meginhugmyndum greina og kafla ritsins. Efninu er skipt í þrjá þætti: (I) Málvistfræði og kenningar, (II) Af málræktarfundum og (III) Hljóðþróun og málsaga.

Kristján Árnason starfaði við háskólakennslu og rannsóknir í um 40 ár og vann ásamt fleirum að uppbyggingu íslenskra málvísinda. Jafnframt hefur hann getið sér framúrskarandi gott orð fyrir fræðistörf sín á alþjóðavettvangi. Háskólakennsla hans spannaði meginsvið íslenskrar málfræði sögulega og samtímalega en ekki hvað síst hljóðkerfisfræði, bragfræði og félagslega málfræði. Kristján hefur einnig samið kennslubækur í íslenskri málfræði. Hann sat um árabil í Íslenskri málnefnd og var formaður hennar 1989–2001.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning