Ferð til Indlands

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 436 5.990 kr.
spinner

Ferð til Indlands

5.990 kr.

ferð til indlands
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 436 5.990 kr.
spinner

Um bókina

Ferð til Indlands er frægasta verk enska skáldsagnahöfundarins E.M. Forsters. Bókin gerist á Indlandi á fyrri hluta tuttugustu aldar þegar landið laut breskri stjórn. Enskar aðkomukonur, Adela Quested og frú Moore, mæta tortryggni meðal breskra íbúa borgarinnar Chandrapore þegar þær lýsa yfir áhuga á að kynnast innfæddum og öðlast skilning á lífsháttum þeirra og aðstæðum. Þær komast í kunningsskap við vingjarnlega, indverskan lækni sem skipuleggur leiðangur að hinum fornu, manngerðu hellum í Marabar, skammt fyrir utan borgina. En eitthvað fer úrskeiðis í ferðinni og Adela  sakar manninn að hafa ráðist á sig. Viðleitni hennar til að blanda geði við hina innfæddu þróast út í árekstur milli þeirra og Englendinganna og afhjúpar um leið margháttaðan klofning innan indversks samfélags.
E.M. Forster (1879–1970) er einn af virtustu rithöfundum Englendinga á tuttugustu öld. Meðal helstu verka hans, auk Ferðar til Indlands (1924), má nefna A Room with a View (1908), Howards End (1910) og Maurice (1971). Eftir öllum þessum bókum hafa verið gerðar vinsælar kvikmyndir.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Ferð til Indlands”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

5.790 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.

INNskráning

Nýskráning