Glaðlega leikur skugginn í sólskininu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 238 |
|
Glaðlega leikur skugginn í sólskininu
5.990 kr. 1.590 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 238 |
|
Um bókina
Ungur drengur vex upp í sjávarþorpi við fjörð sem fóstrar blómlegar sveitir. Nánd við sjó og sjómenn, bændur og búalið, mynda bakgrunn sögunnar. Leiksviðið er bærinn, gömul hús, fjaran, bryggjurnar, sveitin.
Strákar leika sér og rækja skyldur sínar í heimi fullorðinna. Drengurinn hænir að sér dúfur. Hann forðar kettlingi frá dauða og verða með þeim miklir kærleikar, eða hvað …
Drengurinn sér eitt og annað sem aðrir skynja ekki. Það reynist honum þungt í skauti …
Ógeðfelldir atburðir gerast, viðkvæm atvik í lífi fólksins …
Mannlegur breyskleiki birtist í ýmsum myndum. Sannleikur þolir ekki alltaf dagsljósið … Hversu mikils virði eru þá háleit markmið og reisn?
Sagan gerist í skugga kalda stríðsins. Rússagrýlan og Kúbudeilan eru í hámarki og í fyrsta sinn í sögunni stendur mannkynið frammi fyrir tortímingu heimsins vegna kjarnorkusprengju.
Hlýr blær og glettni ríkja í sögunni þrátt fyrir skuggalegt baksvið.
Steinn Kárason er kunnur fyrir fræðibækur sínar, tónlist og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp. Glaðlega leikur skugginn í sólskininu er fyrsta skáldsaga hans.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar