Glæstar vonir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 480 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2022 1.990 kr.
spinner

Glæstar vonir

1.990 kr.3.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2021 480 3.990 kr.
spinner
Rafbók 2022 1.990 kr.
spinner

Um bókina

Glæstar vonir er tímalaust stórvirki, ein af seinustu skáldsögum Dickens og af mörgum talin sú besta. Hann dregur upp margslungnar, litríkar og raunsannar persónur og glæðir þær lífi. Hér gefst íslenskum lesendum færi á að njóta snilldar meistarans í meitlaðri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.

Pipp elst upp í Kent um miðja nítjándu öld hjá skapstríðri systur sinni og manni hennar, járnsmiðnum Joe. Hann stritar í smiðjunni en langar til að komast ofar í þjóðfélagsstigann – ekki síst eftir að hann kynnist hinni fögru en drambsömu Estellu. Einn daginn lítur út fyrir að glæstar vonir hans muni rætast og hann heldur til London. En ekki er allt sem sýnist og inn í þessa grípandi sögu, þar sem birt er lifandi mynd af Englandi Viktoríutímans, fléttast glæpir og refsing, hefndarhugur og von, ást og söknuður.

Meðal verka sem Jón St. Kristjánsson hefur þýtt eru skáldsögurnar Reisubók Gúllívers eftir Jonathan Swift, Náðarstund eftir Hönnuh Kent og sagnaflokkur Roys Jacobsen sem hófst með Hinum ósýnilegu. Fyrir þá þýðingu hlaut Jón Íslensku þýðingarverðlaunin en til þeirra hefur hann verið tilnefndur fjórum sinnum.

 

1 umsögn um Glæstar vonir

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

Saga tveggja borga
2.990 kr.
Oliver Twist
2.590 kr.
Jólaævintýri
2.290 kr.
2.190 kr.
Oliver Twist
990 kr.2.090 kr.

INNskráning

Nýskráning