Lífið virðist blasa við Charlie. Hún gegnir draumastarfinu hjá uppboðsfyrirtæki, býr í fallegri íbúð, á ástríka fjölskyldu og er yfir sig ástfangin af hinum heillandi Philip. En í glæsilegri afmælisveislu sem hann heldur henni birtist lögreglan skyndilega og handtekur hana. Charlie er ranglega sökuð um alvarleg afbrot og í kjölfarið sakfelld og dæmd í fangelsi.
Þegar hún loks losnar úr fangelsinu fer hún að púsla saman vísbendingum um hvernig það gat hafa gerst að hún, sem hafði ávallt verið til fyrirmyndar og heiðarleg, skyldi dæmd saklaus í fangelsi. Hún ákveður að hefna sín á þeim sem lögðu líf hennar í rúst og sýna enga miskunn.
Hefnd Charlie er fyrsta bókin í nýrri seríu eftir metsöluhöfundinn Simonu Ahrnstedt.
Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar