Íslandsdætur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 108 2.690 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 108 2.690 kr.
spinner

Um bókina

Í Íslandsdætrum er sögð saga rúmlega fjörutíu framúrskarandi kvenna sem spanna tímann allt frá upphafi byggðar á Íslandi til dagsins í dag. Konurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Sumar eru þekktar fyrir hugrekki og staðfestu eða fyrir að hafa upplifað ótrúlegar þrekraunir og tekist á við þær af seiglu og áræðni. Aðrar voru brautryðjendur, landkönnuðir, menntakonur, sjómenn eða þekktar fyrir vísindastörf, íþróttaafrek, ritstörf, tónsmíðar eða aðrar listir. Hér er einnig sögð saga kvenna sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna og gáfu kost á sér til forystu til að bæta samfélagið. Yngstu konurnar í bókinni eru rétt að byrja að láta til sín taka.

Á síðum Íslandsdætra er fjallað um stórmerkilegar konur sem höfðu áhrif á samtíma sinn og skildu eftir sig merkilega arfleifð. Kvenskörungar sem létu til sín taka, ruddu brautina, voru frumkvöðlar og létu ekki mótlæti, erfiðar aðstæður, fátækt eða hneykslan samborgaranna á sig fá. Þær eru Íslandsdætur.

Auður Ýr Elísabetardóttir myndskreytti.

Tengdar bækur

3.190 kr.
punktur punktur komma strik
990 kr.2.290 kr.
17.290 kr.
5.990 kr.
4.090 kr.
4.190 kr.
4.090 kr.

INNskráning

Nýskráning