Jónsbók

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2005 720 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2005 720 kr.
✓
spinner

Um bókina

Jón Ólafsson er einn litríkasti athafnamaður Íslendinga á síðustu áratugum. Ferill Jóns er ævintýri líkastur, allt frá því að hann er uppátektarsamur og ofvirkur drengur í Keflavík og þar til hann er kominn í hóp auðugustu manna Íslands. Hér er líst skrautlegum ferli Jóns, hvernig hann haslar sér fyrst völl sem umboðsmaður og útgefandi í tónlistar- og kvikmyndabransanum en lætur smám saman meira að sér kveða í íslensku atvinnulífi, þar til hann stýrir stærsta fjölmiðlaveldi landsins, auk þess að tengjast banka- og verktakastarfsemi. Fljótlega kemur að því að Jón lendir í andstöðu við valdamikla aðila sem taka fast á móti.

Þetta er mikil, spennandi og dramatísk saga, skrifuð af einum fremsta og vinsælasta rithöfundi þjóðarinnar. Einar Kárason byggir á ítarlegum viðtölum við fjölda fólks sem komið hefur við sögu Jóns, bæði vini og fjandvini, þar sem atburðir og persónur samtímans stíga ljóslifandi fram í skemmtilegri og fjörlegri frásögn – og margt kemur hér fram sem koma mun lesendum á óvart og varpar óvæntu ljósi á samfélag okkar.

Bókin er ríkulega myndskreytt, og þar á meðal fjöldi ljósmynda sem aldrei áður hafa komið fyrir almenningssjónir.

Tengdar bækur

3.690 kr. – 4.490 kr.
4.290 kr. – 4.990 kr.
990 kr. – 1.990 kr.
990 kr. – 1.990 kr.
5.690 kr.
3.690 kr. – 3.990 kr.
Leiksskólalögin okkar 2
4.990 kr.
2.990 kr. – 3.690 kr.
Gulleyjan
990 kr. – 1.290 kr.
Þar sem djöflaeyjan rís
1.290 kr.
690 kr. – 1.490 kr.
4.490 kr.
2.690 kr.
4.290 kr. – 4.990 kr.
Íslensk tunga - II . bindi
1.790 kr.
Málað með fingrunum
3.490 kr.
6.390 kr.
490 kr.
4.090 kr.
Eldar kvikna
1.990 kr.

INNskráning

Nýskráning