Kjalnesinga saga: Íslenzk fornrit XIV

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 399 5.390 kr.
spinner

Kjalnesinga saga: Íslenzk fornrit XIV

5.390 kr.

Kjalnesinga saga: Íslenzk fornrit XIV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2007 399 5.390 kr.
spinner

Um bókina

Kjalnesinga saga gerist á dögum Haralds hárfagra en er rituð á 14. öld, ýkjufull skemmtisaga sem minnir mjög á fornaldarsögur. Höfundur hefur verið kunnugur á söguslóðum og gefur mörgum persónum heiti eftir örnefnum. Aðalgarpur sögunnar er Búi Andríðsson; hann dvelst um skeið hjá Dofra konungi í Dofrafjalli í Noregi og getur soninn Jökul við Fríði dóttur hans. Þegar Jökull kemur til fundar við föður sinn vill hann ekki við honum gangast, og þreyta þeir fang sem lýkur svo að Búi bíður bana, en Jökull hverfur á braut. Einhverjum uppskrifara hefur ekki þótt nóg frá Jökli sagt og aukið við sérstökum Jökuls þætti Búasonar sem er enn ýktari en sagan, segir frá viðureign garpsins við tröll og forynjur og lýkur svo að hann verður konungur í Serklandi.

Víglundar saga er hugljúf frásögn af ástum þeirra Víglundar og Ketilríðar sem í fyrstu er meinað að eigast en ná þó saman að lokum. Sagan er með allra yngstu Íslendingasögum, samin undir sterkum áhrifum frá riddarasögum, og er Tristrams saga nánasta fyrirmyndin. Hún er prýdd með tregafullum dróttkvæðum stökum sem Víglundur kveður til ástmeyjar sinnar.

Króka-Refs saga er einnig ung skáldsaga, haglega rituð og einkar skemmtileg. Refur hlýtur viðurnefni sitt fyrir kænskubrögð sín sem aldrei bregðast. Snjallastur er orðaleikur hans þegar hann lýsir vígi Skálp-Grana á hendur sér, og minna gáturnar á skáldskaparmál Snorra-Eddu. Á kafla víkur sögunni til Grænlands þar sem Refur lendir í miklum ævintýrum.

Þórðar saga hreðu
er til í tveim gerðum, og er önnur heil en hin í brotum. Sagan er að mestu leyti skáldskapur, en ekki í anda fornaldarsagna eða riddarasagna heldur stæling á eldri Íslendingasögum (Egils sögu, Njálu o.fl.). Þórður er kappi mikill sem verst árásum margra manna í senn ef á þarf að halda. Hann var hagleiksmaður mikill og smíðaði fræga skála í Flatatungu og víðar.

Finnboga saga er enn ein ýkjusagan frá 14. öld, löguð eftir eldri Íslendingasögum. Finnbogi rammi ólst upp á Flateyjardal norður. Hann er líkur Þórði hreðu að garpskap og vígfimi og berst léttilega við ofurefli liðs. Sagan tengist Vatnsdælu þar sem segir frá skiptum Finnboga og frænda hans Bergs rakka við Ingimundarsyni. Hvor saga er vilhöll sínum hetjum, en auk þess liggja líklega að baki mismunandi munnmælasagnir sem valda því að margt ber á milli.

Gunnars saga Keldugnúpsfífls hefur mörg sömu efnisatriði sem Kjalnesinga saga og er líklega sniðin eftir henni. Hún er meðal allra yngstu Íslendingasagna.

Jóhannes Halldórsson gaf út með inngangi og skýringum.

Tengdar bækur

1.790 kr.
7.190 kr.
4.290 kr.7.690 kr.
3.590 kr.
3.190 kr.
6.190 kr.
990 kr.1.990 kr.
4.590 kr.
Sturlunga
14.890 kr.
Orkneyinga saga
5.390 kr.
Morkinskinna I&II: Íslenzk fornrit XXIII and XIV
8.890 kr.
Danakonunga sögur: Íslenzk fornrit XXXV
5.390 kr.
Hákonar saga I&II: Íslenzk fornrit XXXI–XXXII
8.890 kr.
Sverris saga: Íslenzk fornrit XXX
5.390 kr.
Ágrip af Noregskonungasögum - Fagurskinna Noregs konunga tal: Íslenzk fornrit XXIX
5.390 kr.
Heimskringla III: Íslenzk fornrit XXVIII
5.390 kr.
Heimskringla II: Íslenzk fornrit XXVII
5.390 kr.
Heimskringla I: Íslenzk fornrit XXVI
5.390 kr.
Færeyinga saga - Ólafs saga odds
5.390 kr.
Biskupa sögur III: Íslenzk fornrit XVII
5.390 kr.

INNskráning

Nýskráning