Sjálfbærni í textíl: Neysla, nýting og nýsköpun
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 236 | 7.290 kr. |
Sjálfbærni í textíl: Neysla, nýting og nýsköpun
7.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 236 | 7.290 kr. |
Um bókina
Markmiðin með bókinni byggja á þremur meginþáttum:
að ná utan um hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran lífsstíl,
að auka skilning almennings á sjálfbærri þróun og ábyrgri neyslu og finna leiðir til að lengja endingartíma fatnaðar og annarra textílafurða með því að endurhugsa og endurnota og jafnvel skapa eitthvað alveg nýtt,
að hafa bókina innihaldsríka, einfalda að gerð og heimaunna en sú nálgun kallast einnig á við innihald bókarinnar; heimaunnin verkefni með áherslu á einfaldar aðferðir þar sem hvatt er til sjálfbærrar hugsunar, sköpunar, nývirkni og nýsköpunar með endurnýtingu að leiðarljósi.
Á undanförnum árum, sérstaklega eftir að Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru innleidd, er enn meiri þörf á þátttöku almennings í aðgerðum gegn umhverfismengun. Markmiðið með bókinni er að ná utan um þá þætti sem textílgreinin hefur upp á að bjóða í slíkum aðgerðum. Í tengingunni – neysla, nýting og nýsköpun – er áhersla lögð á að greina vandann og öðlast reynslu og þekkingu til að takast á við nývirkni og nýsköpun í leitinni að lausnum gegn sóun og mengun frá textílheiminum. Textílgreinin er fjölbreytt vegna þeirra ólíku aðferða sem heyra þar undir og hver aðferð fyrir sig býður upp á óendanlega fjölbreytni og verkefnaval. Í bókinni kallast ólíkar textílaðferðir á við mismunandi verkefni sem nálgast má með einföldum aðgerðum sem allir geta tileinkað sér og unnið að heima við á bæði persónulegan og skapandi hátt. Textílaðferðirnar eru útskýrðar með einföldum og skýrum teikningum sem studdar eru með stuttum skýringartextum og ítarlegum textaleiðbeiningum.
Verkefnið er styrkt af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Kennslumálasjóði Háskóla Íslands, Hagþenki – félagi höfunda fræðirita og kennslugagna og Miðstöð íslenskra bókmennta. Einnig hefur formaður Neytendasamtakanna og stjórn Félags textílkennara í grunnskólum veitt verkinu umsögn.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar