Ljósmyndarar á Íslandi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 9.475 kr.
spinner

Ljósmyndarar á Íslandi

9.475 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 9.475 kr.
spinner

Um bókina

Í þessu viðamiklu verki leiðir höfundur lesendur gegnum fyrstu öld ljósmyndunar á Íslandi af mikilli þekkingu. Saga ljósmyndunar í öllum sínum margbreytileika er sögð frá frumskeiði hennar um miðja 19. öld og fram til stríðsloka.

Til hagræðis fyrir erlenda lesendur hefur þessi bókarhluti verið þýddur á ensku.

Í sérstöku ljósmyndaratali er gefin mynd af öllum sjálfstætt starfandi ljósmyndurum á tímabilinu og birt vandað sýnishorn ljósmynda eftir hvern og einn þeirra.

Bókina prýða hátt á fimmta hundrað ljósmyndir sem sýna þróun ljósmyndunar og veita jafnframt fágæta sýn á þjóðina og sögu hennar. Allar myndir ljósmyndaranna eru birtar óbreyttar og í upprunalegum lit og margar þeirra hafa ekki áður birst á prenti.

Ljósmyndarar á Íslandi 1845–1945 er skrifuð af okkar helsta sérfræðing í ljósmyndasögu Ingu Láru Baldvinsdóttur, deildarstjóra myndadeildar Þjóðminjasafns Íslands.

Ljósmyndarar á Íslandi 1845–1945 er fræðirit á nýju sviði, ljósmyndasögu, sem lítt hefur verið sinnt hérlendis og ætti að höfða til allra áhugamanna um sögu landsins.

Tengdar bækur

2.390 kr.
Davíð Wunderbar - kápa #5.indd
4.490 kr.
bold fjölskyldan í grænum gír
4.590 kr.
15.490 kr.
2.490 kr.
10.190 kr.
3.590 kr.
3.690 kr.
3.090 kr.
3.890 kr.4.190 kr.
4.090 kr.

INNskráning

Nýskráning