Mía, Moli og Maríus: Vandræðasögur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 124 | 3.490 kr. |
Mía, Moli og Maríus: Vandræðasögur
3.490 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 124 | 3.490 kr. |
Um bókina
Mía, Moli og Maríus – Vandræðasögur er einstaklega falleg og eiguleg barnabók sem er hugsuð fyrir aldurshópinn 3-6 ára. Markmið hennar er að efla tilfinningameðvitund og samkennd.
Í bókinni eru sagðar 5 sögur þar sem leikskólavinirnir Mía, Moli og Maríus lenda í kunnuglegum ágreiningi. Sögurnar leiða lesendur í gegnum aðstæðurnar á gamansaman hátt, með gagnvirkum lestri. Á hápunkti ágreiningsins eru sögurnar stoppaðar og sjónarhorninu viljandi beint frá einni sögupersónu til annarrar, til þess að þjálfa barnið í að setja sig í spor annarra.
Bókinni er ætlað að veita börnum og uppalendum verkfæri til að ræða þær margvíslegu og oft á tíðum flóknu aðstæður og tilfinningar sem upp koma í hinu daglega lífi.
Myndskreytir er Ragnheiður Jónsdóttir.
Barnavinafélagið Sumargjöf styrkti útgáfu bókarinnar.