Nágrannavarsla

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 410 3.690 kr.
spinner

Nágrannavarsla

3.690 kr.

nágrannavarsla
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 410 3.690 kr.
spinner

Um bókina

Hvaða hættur kunna að leynast í garði nágranna þíns? Er einhver í húsinu við hliðina sem á að standa autt?

Sonja Jansen er ein heima að lesa undir próf. Hún hefur tekið að sér að vökva fyrir nágrannann í rólegu úthverfi. Hún verður vör við umgang í húsinu og hringir í lögregluna.

Lögreglumaðurinn Lydia Winther, sem kölluð er Snö, kemur á vettvang ásamt félaga sínum. Þær verða ekki varar við neitt grunsamlegt sem gefur tilefni til að aðhafast og hverfa á braut. En Snö finnur innra með sér að ekki er allt með felldu. Nokkru síðar snýr hún aftur en þá er Sonja horfin.

Þegar Snö hefur leitina að Sonju fléttast gamalt fjölskylduleyndarmál inn í málið sem smám saman verður ógnvænlegra og teygir anga sína inn í norska olíuiðnaðinn.

UNNI LINDELL er sannkölluð glæpasagnadrottning Noregs. Hún hefur tvívegis hreppt hin virtu Riverton-verðlaun í Noregi og vinsælar sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar sem m.a. hafa verið sýndar á RÚV.

Tengdar bækur

aðskotad
3.690 kr.
Dróninn
3.490 kr.
Ég veit hvar þú átt heima
1.190 kr.3.390 kr.
Hunangsgildran
3.290 kr.

INNskráning

Nýskráning