Norræn sakamál 2008

Útgefandi: Lindhard
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 1.990 kr. Setja í körfu

Norræn sakamál 2008

Útgefandi : Lindhard

1.990 kr.

Norræn sakamál 2008
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 1.990 kr. Setja í körfu

Um bókina

Hér kemur fyrir augu þín áttunda bókin í ritröðinni Norræn sakamál. Í þessari bók eru átta íslenskar sögur en mörg málanna vöktu verulega athygli þegar þau voru til meðferðar í dómskerfinu og tóku talsvert pláss í fjölmiðlum. Þetta eru fjölbreyttar sögur sem fjalla um mjög mismunandi afbrot sem þó eru öll áhugaverð og spennandi.

Meðal annars má nefna frásögnina af dauða ungbarnsins sem er einstakt mál í sinni röð hér á landi enda fór það alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hún er líka sérstök, frásögnin af umferðarslysinu sem var flóknara í rannsókn en mörg morðmál en var að lokum upplýst að fullu. Sagan um hæstaréttarlögmanninn, sem lék mörgum skjöldum til að tæla ungar stúlkur, er merkileg og hana ættu allir að lesa til að kunna að varast slíkar gildrur.

Auk þessara íslensku frásagna eru margar sögur frá hinum Norðurlöndunum. Þær eru ekki síður áhugaverðar og vel þess virði að lesa þær. Þar má t.d. nefna söguna um ungu stúlkuna sem giftist manninum sem hún elskaði en hafði ekki fengið samþykki fjölskyldu sinnar, sem hjálpaðist að við að koma henni fyrir kattarnef. Þar er líka frásögnin af nauðgararanum sem fann fórnarlömb sín á netinu og notaði það til að tæla stúlkurnar til sín. Sagan um dauðaáætlunina er miklu líkari lygasögu en sannleikanum en er samt sönn.
Blom-Petterson-málið er saga um hjónaband sem segja má að hafi endað úti í skógi. Þetta eru fá dæmi en engin af þessum sögum er annarri lík.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 12 klukkustundir og 21 mínútur að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning