Rassfar í steini – í slóð Ólafs helga til Stiklastaða

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 272 4.290 kr.
spinner
Rafbók 2020 2.890 kr.
spinner

Rassfar í steini – í slóð Ólafs helga til Stiklastaða

2.890 kr.4.290 kr.

Rassfar í steini - í slóð Ólafs helga til Stiklastaða
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 272 4.290 kr.
spinner
Rafbók 2020 2.890 kr.
spinner

Um bókina

Ólafur konungur Haraldsson, ýmist kallaður digri eða helgi, ríkti í rúman áratug yfir Noregi en hraktist þaðan í útlegð og var á endanum felldur í Stiklastaðaorrustu. Fljótlega fór að bera á kraftaverkum í kringum líkið og innan skamms var hann orðinn helgur maður. Enginn veit almennilega hvers vegna því að Ólafur aðhafðist margt misjafnt og ókristilegt um dagana.

Hinsta ferð Ólafs var frá Svíþjóð yfir Kjöl til Stiklastaða og varð sú leið ein fjölfarnasta pílagrímaleið Norðurlanda. Tæpum þúsund árum eftir fall Ólafs konungs fór Jón Benedikt Björnsson þessa leið ásamt félaga sínum á reiðhjóli. Í bókinni lýsir hann ferðalaginu og rekur samhliða því sögu þessa einkennilega manns, en Ólafur Haraldsson er þungamiðjan í Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Jafnframt eltir Jón uppi athyglisverða hluti og furðulega viðburði sem verða á veginum, að fornu og nýju, og leiðir lesandann í ólíklegustu útúrdúra.

Eftir Jón Benedikt Björnsson hafa komið út bækur af ýmsu tagi, m.a. Á Jakobsvegi, auk þess sem hann hefur verið með vinsæla pistla í Ríkisútvarpinu.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning