Raunvitund: Tíu ástæður þess að við höfum rangt fyrir okkur um heiminn og hvers vegna staðan er betri en þú heldur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 308 4.290 kr.
spinner

Raunvitund: Tíu ástæður þess að við höfum rangt fyrir okkur um heiminn og hvers vegna staðan er betri en þú heldur

4.290 kr.

Raunvitund: Tíu ástæður þess að við höfum rangt fyrir okkur um heiminn og hvers vegna staðan er betri en þú heldur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2020 308 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Þegar við erum spurð einfaldra spurninga um hvernig ýmsum málum heimsins er háttað; af hverju fjölgar fólki, hversu margar ungar konur fara í nám, hve mörg okkar lifa í fátækt – svörum við rangt á kerfisbundinn hátt. Svörin eru meira að segja svo röng að simpansar sem velja svörin af handahófi svara fleiri spurningum rétt en rannsóknarblaðamenn, fjárfestar og þeir sem eru tilnefndir til Nóbelsverðlauna. Vandamálið er að við vitum ekki að við vitum ekki og jafnvel ágiskanir okkar eru litaðar af ómeðvituðum en fyrirsjáanlegum fordómum.

Í Raunvitund rekur Hans Rosling ástæður þessa á róttækan hátt og flettir ofan af tíu hvötum sem afmynda sjónarhorn okkar – allt frá hvernig við skiptum heiminum í tvennt (við og þau), hvernig við lesum úr upplýsingum fjölmiðla (þar sem óttinn ræður för) til þess hvernig við skynjum framfarir (trúum að flestir hlutir fari versnandi).

Í ljós kemur nefnilega að ástand heimsins, þrátt fyrir alla vankanta, er mun betra en við gætum haldið. En þegar við höfum stöðugt áhyggjur af öllu í stað þess að vera opin fyrir og taka tillit til staðreynda missum við sjónar á því sem ógnar okkur mest.

Raunvitund er hrífandi og upplýsandi, full af líflegum og áhrifamiklum frásögnum. Raunvitund breytir sýn okkar á heiminn og gerir okkur kleift að bregðast við áskorunum og tækifærum sem framtíðin hefur í för með sér.

Gunnar Dofri Ólafsson þýddi.

„Ein mikilvægasta bók sem ég hef lesið. Ómissandi leiðarvísir til að sjá heiminn í réttu ljósi.“
Bill Gates

Tengdar bækur

Placeholder
4.990 kr.
2.590 kr.
6.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
3.890 kr.
3.190 kr.
Placeholder
kr.
Placeholder
kr.
5.890 kr.

INNskráning

Nýskráning