Saga 2021 LIX: 2

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 4.190 kr.
spinner

Saga 2021 LIX: 2

4.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2021 4.190 kr.
spinner

Um bókina

Í hausthefti Sögu eru tvær ritrýndar greinar. Kristín Ingvarsdóttir skrifar um það sem hún kallar japanska tímabilið í hvalveiðum Íslendinga frá 1971–1990, þegar sala, vinnsla og viðskipti Íslendinga með hvalkjöt miðuðust í vaxandi mæli við Japan. Kristín skoðar sameiginlega hagsmuni hvalveiðiþjóðanna tveggja en einnig hvað greinir þær að. Hrafnkell Lárusson skrifar um einkenni, áhrif og hnignun þess sem hann kallar íslenska dyggðasamfélagið og það hvernig viðurkenndar dyggðir, trúarhugmyndir og siðferðisviðmið voru að taka breytingum á Íslandi um aldamótin 1900. Gunnar Tómas Kristófersson skrifar grein um kápumynd Sögu sem fengin er úr danskennslumyndinni Flat-Charlestone eftir Ruth Hanson, fyrstu kvikmynd sem gerð var af konu á Íslandi, en Sigurður Gylfi Magnússon bregst við grein Hafdísar Erlu Hafsteinsdóttur, „Landnám kynjasögunnar á Íslandi“, sem birtist í hausthefti Sögu 2020. Fjórir höfundar leggja pistla til álitamála heftisins, sem bera yfirskriftina „Minnismerki og söguskoðun“. Njörður Sigurðsson skrifar um Biblíubréfið svokallaða, verðmætt skjal frá 1874 með 23 þjónustufrímerkjum frá Íslandi sem hefur gengið kaupum og sölum undanfarna áratugi fyrir háar fjárhæðir, og Halldóra Kristinsdóttir skrifar um dagbækur Hannesar Thorsteinssonar, sem varðveittar eru á Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni. Loks er að finna í heftinu eina ritfregn og tíu ritdóma, þar af ítardóm Þorsteins Helgasonar um þrjár bækur sem varða sögu Tyrkjaránsins.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Saga 2021 LIX: 2”

Tengdar bækur

990 kr.
Krossga tur_Morgunblaðið_15_2024
1.890 kr.
890 kr.
2.690 kr.
4.890 kr.
1.990 kr.3.690 kr.
6.990 kr.
2.990 kr.
990 kr.7.290 kr.
2.490 kr.
6.390 kr.
4.590 kr.
2.690 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
3.790 kr.
2.990 kr.4.290 kr.

INNskráning

Nýskráning