Sálfræði peninganna

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2025 264 Original price was: 5.190 kr..Current price is: 3.999 kr..
spinner

Sálfræði peninganna

Original price was: 5.190 kr..Current price is: 3.999 kr..

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2025 264 Original price was: 5.190 kr..Current price is: 3.999 kr..
spinner

Um bókina

Þetta er ekki bók um hvernig á að ná árangri í fjárfestingum og „sigra markaðinn“ eða verða ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun, viðhorf og sjálfsþekkingu – og þar af leiðandi um hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri ákvarðanir.

Farsæld í fjármálum fer ekki endilega eftir því hvað þú kannt. Hún fer eftir því hvernig þú hegðar þér. Og það er erfitt að kenna fólki hegðun, jafnvel eldkláru fólki. Kennsla um peninga fjallar nær alltaf um fjármálin á rökréttan og stærðfræðilegan hátt þar sem alltaf er hægt að reikna sig að réttri niður-stöðu. Sú hlið fjármála er auðvitað til staðar, en við erum tilfinningaverur, skrítnar skrúfur, með flókið samband við peninga og við tökum -flestar -okkar peninga-ákvarðanir út frá tilfinningu, ekki rökhyggju. Við tökum -þessar ákvarðanir við kvöldverðarborðið eða í fundarherbergi þar sem okkar persónu-lega reynsla, heimssýn, egó, stolt og hvatar blandast saman og hafa áhrif.

Í Sálfræði peninganna segir metsöluhöfundurinn Morgan Housel 19 stuttar sögur um mannlega peningahegðun og þá áhugaverðu sálfræði sem liggur henni að baki. Höfundur hjálpar lesendum að skilja betur eitt af stóru mál-unum í lífinu því öll þurfum við að kunna að fara með peninga.

Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir íslenskuðu.

 

„Þessi bók á sérstaklega mikið erindi við íslenska lesendur og ætti að vera skyldulesning fyrir alla þá sem vilja ekki bara taka upplýstar fjármálaákvarðanir heldur líka láta sér líða vel með þær.“

—björn berg

Fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar

 

„Mjög aðgengileg bók sem útskýrir á fjölbreyttan hátt eðli peninga. Öll geta tengt við skemmtilegar dæmisögur, óháð bakgrunni og menntun. Bók sem hjálpar okkur að skilgreina hvað felst í okkar eigin auðlegð.“

—ÁSTA FJELDSTED

 

Forstjóri Festi

„Frábær bók sem hittir naglann á höfuðið. Við greiningu á samtímanum og framtíðinni skipta viðhorf og tilfinningar gagnvart efnahagslegum stærðum oft meira máli en rökréttir útreikningar.“
—bERGUR EBBI

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Sálfræði peninganna”

Tengdar bækur

Original price was: 2.690 kr..Current price is: 2.490 kr..
Original price was: 2.990 kr..Current price is: 790 kr..
3.790 kr.
2.990 kr.
5.390 kr.
Original price was: 4.390 kr..Current price is: 2.999 kr..
3.890 kr.

INNskráning

Nýskráning