Sölvasaga unglings

Útgefandi: Sögur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 255 2.890 kr.
spinner
Kilja 2016 255 2.890 kr.
spinner

Sölvasaga unglings

Útgefandi : Sögur

2.890 kr.

Solvasaga
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 255 2.890 kr.
spinner
Kilja 2016 255 2.890 kr.
spinner

Um bókina

Sölvi er kvíðinn unglingur úr Reykjavík sem er sendur austur á land í sveit til ömmu sem hann þekkir varla. Nú á dögum eru einungis fíklar og alkar sendir í sveit og hann er hvorugt. Svo af hverju er hann píndur í sveitina? Opinbera skýringin er sú að foreldarnir þurfi að redda fjárhagnum – pabbi ætlar á sjó en mamma til Noregs. En Sölvi hefur líka ýmislegt á samviskunni, og nú á að kippa því í lag með því að láta hann púla í sveitinni. Og svipta hann netinu!

Sölvi fær gamla herbergið hans pabba þar sem ekkert hefur breyst frá 1985. Mun hann finna sig umkringdur rispuðum vínilplötum og rykföllnum bókum? Hafa plaköt af David Bowie og Jóni Páli Sigmarssyni eitthvað að segja honum? Mun hann ná að brúa bilið milli ruglsins í höfðinu á honum og veruleikans í líki Arndísar? Munu rapptextarnir hans ná einhverju flugi eða færi best á að brenna allt draslið? Er hugsanlegt að hann snúi til baka úr þessari tímavél í lok sumars nýr og betri maður? Mun hann kannski ekkert snúa aftur yfirhöfuð?

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning