Þrjátíu og sjö skáld í mynd
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 83 | 5.390 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 83 | 5.390 kr. |
Um bókina
Einstök, hugvitsamleg og vekjandi bók fyrir þá sem unna ljóðlistinni, en ekki síður fyrir hina ýmsu og ólíku lesendur. Einhver sagði að svona bók ætti að vera skyldulesning og sannarlega er mikill fengur í þessum hnyttnu og skemmtilegu myndljóðum sem dregin eru upp af 37 innlendum og erlendum skáldum. Eftirmála ritar Ófeigur Sigurðsson.
„Ljóðin í þessari bók hafa ummyndast í myndlist og skerpt svo um munar tengslin sem ætíð hafa legið á milli þessara tveggja listgreina. Myndljóð Óskars Árna birtust á vissan hátt úr tóminu í Tímariti Bjarts og frú Emilíu árið 1997 í sérritinu Án orða og hvar Óskar var einráður en það hæfir honum vel … Óskar Árni Óskarsson er gangandi skáld enda ekki með bílpróf. Hann hefur skapað sér einhverja mestu og margbrotnustu sérstöðu í íslenskri ljóðlist. Löngum kallaður meistari smáprósans. Hann er vegabóndi jafnt í eðli sínu og skáldskap og því óræð gáta. Menn vita ekki hvort hann er borgarskáld utan af landi eða landsbyggðarskáld af Bergstaðastrætinu.“



















Umsagnir
Engar umsagnir komnar