Tímarit Máls og menningar – 1. tbl 2022

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 144 2.890 kr.
spinner

Tímarit Máls og menningar – 1. tbl 2022

2.890 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2022 144 2.890 kr.
spinner

Um bókina

Við lítum til austurs að þessu sinni með tveimur vönduðum efnisatriðum tengdum Rússlandi. Hringur Ásgeir Sigurðarson skrifar um Nóbelsverðlaunahafann Svetlönu Alexíevítsj og þýðir brot úr bók hennar Second hand tíma og Rebekka Þráinsdóttir fjallar um hróp og köll í Glæp og refsingu Dostojevskís.

Þau Ragnar Jonasson, Sunna Dís Másdóttir, Árni Árnason, Brynjólfur Þorsteinsson og Berglind Ósk færa okkur fjölbreytt úrval nýrra smásagna og á milli þeirra slæðast ljóð eftir Ólaf Gunnarsson og Bubba Morthens. Einar Kárason gagnrýnir víðtekna túlkun á uppruna fornbókmentanna, Bjarni M. Bjarnason skáldar sálgæslusamtal við ljóðmælandann í Blysförum Sigurbjargar Þrastardóttur en hryggjarstykki heftisins er svo svaðilför Xinyu Zhang um Truflunina eftir Steinar Braga sem færir lesendum glænýja sýn á það merka verk. Ásta Kristín Benediktsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir og Páll Valsson rita bókaumsagnir.

Nýr hugvekjuhöfundur tímaritsins á árinu er Jónas Reynir Gunnarsson sem fer frumlegum höndum um formið og hlökkum við mikið til samstarfsins við hann á komandi ári. Við hlökkum sömuleiðis til samfylgdarinnar með ykkur lesendum og gerum lokaorð greinar Zhang að okkar þegar við segjum: „Lifum, lesum – þrátt fyrir allt.“

Tengdar bækur

Vesturbærinn stór
4.590 kr.
2.690 kr.
1.790 kr.
6.990 kr.
4.090 kr.
3.690 kr.
6.190 kr.
5.390 kr.
4.490 kr.
2.990 kr.4.290 kr.

INNskráning

Nýskráning