Týndu stúlkurnar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 447 1.690 kr.
spinner

Týndu stúlkurnar

1.690 kr.

Týndu stúlkurnar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2017 447 1.690 kr.
spinner

Um bókina

Tvær stúlkur eru horfnar. Aðeins önnur þeirra mun skila sér heim. Hjónin sem bjóða hærri peningaupphæð fá dóttur sína til baka, hin ekki. Þannig eru reglurnar. Annað barnið mun deyja.

Þegar hinar níu ára gömlu Charlie og Amy hverfa skyndilega upplifa fjölskyldur þeirra sannkallaða martröð. Stuttu síðar berst staðfesting á hinu óhugsandi í textaskilaboðum; stúlkunum hefur verið rænt. Næstu skilaboð etja fjölskyldunum tveimur saman í keppni um líf dætra sinna, og tíminn er senn á þrotum hjá Kim Stone og liðinu hennar.

Mannræningjarnir virðast alltaf skrefi á undan og eftir því sem líkunum fjölgar áttar Stone sig á því að þetta eru mögulega hættulegustu glæpamenn sem hún hefur átt í höggi við. Möguleikarnir á að stúlkurnar finnist á lífi minnka með hverri klukkustund …

Lausnina gæti verið að finna í leyndarmálum sem grafin eru í fortíð fjölskyldnanna. Tekst Kim að leysa úr þessu áður en það verður um seinan? Eða mun önnur stúlkan deyja?

Nýjasta, ávanabindandi glæpasagan frá metsöluhöfundinum Angelu Marsons.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning