Rafbókakeppninni Nýjar raddir lýkur 10. desember

 

Nú líður að lokum rafbókakeppninnar Nýjar raddir en skilafrestur er 10. desember. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð), ætlaður fyrir fullorðna.

Valin verða að hámarki þrjú handrit úr innsendum verkum sem gefin verða út í rafrænu formi undir merkjum Forlagsins að vori. Útvaldir höfundar fá samning við Forlagið, fyrirframgreiðslu upp á 100.000 kr., ritstjórn og kynningu. Frá vinningshöfum er skýrt opinberlega á útgáfudegi.

Handrit skal senda á netfangið handrit@forlagid.is og merkja með „Nýjar raddir“.

INNskráning

Nýskráning