Lauftré á Íslandi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 128 4.690 kr.
spinner

Lauftré á Íslandi

4.690 kr.

Lauftré
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 128 4.690 kr.
spinner

Um bókina

Bókin Lauftré á Íslandi er önnur bókin í bókaflokknum „Við ræktum“ gefin út af Sumarhúsinu og garðinum, fyrst árið 2006. Önnur útgáfa hennar sem nú er gefin út var endurbætt og yfirfarin í ágúst 2020. Til viðbótar við þær 50 tegundir lauftrjáa sem fjallað var um í fyrstu útgáfu bókarinnar bætast við 8 tegundir í annarri útgáfu. Auk nýrra tegunda bætast við upplýsingar um nýja sjúkdómar og vágesti úr skordýrafánunni sem fest hafa sig í sessi á Íslandi frá 2006.

Bókin er handhægur leiðarvísir fyrir fagfólk jafnt sem áhugafólk um lauftré sem náð hafa yfir 5 metra hæð á Íslandi. Í bókinni er fjallað um tegundir sem ýmist eru vel kunnar eða lítt reyndar, en talið að geti þrifist við íslensk skilyrði. Fjallað er um uppruna tegundanna, reynslu af ræktun þeirra á Íslandi, eðli og gerð. Farið er inná erfðafræðilega þætti, umönnun, þrif og fjölgun trjánna. Sjúkdómum og skordýrum sem skaða og sækja á trén eru gerð skil og fuglarnir sem flögra í trjánum og nærast á skordýrum sem á þau sækja. Allt upplýsingar sem auðvelda lesandanum að átta sig á þeim fjársjóði sem úr er að velja þegar kemur að vali lauftrjáa í garðinn, sumarhúsalandið, skjólbelti eða til að nota í skógrækt.

Fjöldi fagmanna kom að gerð bókarinnar. Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur er ritstjóri hennar og einn meginhöfunda hennar. Þórarinn Benediktz skógfræðingur og Tryggvi Marinósson garðyrkjufræðingur eru meðhöfundar, auk þess eru í bókinni nokkrar greinar sérfræðinga.

Tengdar bækur

Placeholder
kr.
1.390 kr.
3.190 kr.
1.390 kr.
4.590 kr.
5.790 kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
3.690 kr.
Placeholder
5.490 kr.
Placeholder
5.490 kr.

INNskráning

Nýskráning