Kormákseðli þjóðskáldsins

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 487 6.890 kr.
spinner

Kormákseðli þjóðskáldsins

6.890 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 487 6.890 kr.
spinner

Um bókina

Í ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, sem út kom árið 2007 er lítið fjallað um náin samskipti hans við konur. Davíð var fámáll um einkalíf sitt og lengst af hefur lítið verið vitað með vissu um samskipti skáldsins við hitt kynið. Margt hefur þó verið sagt og skrifað um ástarmál Davíðs, oftar en ekki byggt á hæpnum forsendum.

Jafnvel eru til þeir einstaklingar sem gengið hafa svo langt að túlka sum ljóð hans með þeim hætti að þau endurspegli takmarkaðan áhuga hans á konum. Frásögnin í þessari bók sýnir að slíkar bollaleggingar eru ekki í takt við veruleikann.

Nú hafa sendibréf Davíðs til tveggja kvenna verið gerð opinber. Þau varpa ljósi á einkalíf skáldsins og sýna nýja hlið á „manninum Davíð.“ Frásögnin af ástamálum hans í þessari bók byggir að stórum hluta á þessum bréfum. En þótt Davíð ætti kærustur og ástkonur var hann einhleypur alla ævi. Mörgum hefur þótt undarlegt að „þessi gleði- og ástamaður“ yrði ein-setumaður sem aldrei festi ráð sitt. Hver var ástæðan? Var Kormákseðlinu um að kenna eins og Davíð ýjaði raunar að sjálfur? Svarið er að finna í þessari bók.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Kormákseðli þjóðskáldsins”

Tengdar bækur

2.990 kr.
4.090 kr.
2.690 kr.
3.490 kr.
4.390 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
4.790 kr.
4.390 kr.
3.590 kr.

INNskráning

Nýskráning