Aðskotahlutir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 290 Original price was: 7.890 kr..Current price is: 6.890 kr..
✓
spinner

Aðskotahlutir

Original price was: 7.890 kr..Current price is: 6.890 kr..

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 290 Original price was: 7.890 kr..Current price is: 6.890 kr..
✓
spinner

Um bókina

„Þorgerður beið spennt eftir viðbrögðum við myndbandinu, kannski spenntari en tilefni var til, en þetta hafði heldur ekki verið neinn venjulegur morgunn. Svona hasar fyrir hádegi gerði það að verkum að henni fannst eins og heilinn hefði jafnvel bólgnað örlítið og passaði ekki almennilega í kúpuna.“

Svefnvana móðir fær nístandi óþægindi úr fortíðinni á heilann. Ungur eldhugi dragnast með íslenska slaufun og stóra drauma í nýju landi. Bæði velkjast í vafa um að þau eigi afturkvæmt til Íslands, bæði þarfnast umfram allt félagsskapar.

Aðskotahlutir heillandi samtímasaga um tengsl, meðalmennsku og frama, samskipti í hjónabandi og eðli vináttu, eilífan flótta undan sársauka og söknuð eftir því sem aldrei varð.

Einar Lövdahl er höfundur smásagnasafnsins Í miðju mannhafi (2021) sem bar sigur úr býtum í Nýjum röddum, handritasamkeppni Forlagsins. Skáldsaga hans Gegnumtrekkur (2024) hlaut verðskuldaða athygli þvert á kynslóðir lesenda og hefur útgáfurétturinn verið seldur til fjölda landa.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Aðskotahlutir”

Tengdar bækur

2.990 kr. – 4.290 kr.
990 kr. – 2.590 kr.

INNskráning

Nýskráning