Fólkið í vitanum: Gleði og sorgir í Hornbjargsvita

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 282 4.490 kr.
✓
spinner

Fólkið í vitanum: Gleði og sorgir í Hornbjargsvita

4.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2026 282 4.490 kr.
✓
spinner

Um bókina

Harmþrungnar, glaðbeittar og sumpart ævintýralega fjarstæðukenndar frásagnir af fólki sem átti það sameiginlegt að velja sér búsetu á einum afskekktasta og harðbýlasta stað landsins. Fólkið í vitanum er samfelld saga vitavarða og fjölskyldna þeirra í Hornbjargsvita í 65 ár. Brjóstamjólk út í kaffið. Kýrin sem þjáðist af heimþrá oig músafárið.

Fólkið í vitanum er samfelld saga vitavarða og fjölskyldna þeirra í Hornbjargsvita í 65 ár. Tímabil sagnanna spannar allt frá byggingu vitans, árið 1930, fram til ársins 1985 þegar búseta í vitanum var lögð niður. Í bókinni er lýst baráttu fólksins og þeim mannraunum sem voru óumflýjanlegar. Þá er það glíman við einmanaleikann á stað þar sem engir komu mánuðum saman aðrir en varðskipsmenn.

Árið 1935 gengu miklar hörmungar yfir fjölskylduna í Hornbjargsvita þegar tvö yngstu börnin og móðir þeirra dóu á nokkrum dögum. Fjölskyldan sem tók við vitavörslunni mætti þeim hræðilegu örlögum að vitavörðurinn lést sviplega og fjölskyldan sat eftir í sárum.

Ráðskonan í Hornvík gaf brjóstamjólk út í kaffið. Kýrin sem þjáðist af heimþrá og strauk. Refirnir við vitann. Músafárið og kötturinn sem drapst hafísveturinn mikla.

Vitavörðurinn lagði upp í háskaför og braust suður víkur í dauðaleit að skipbrotsmönnum. Langvarandi tannpína vitavarðar og bjargvættur sem kom með gúmbáti. Skáldkona flæmdi herinn frá Hornströndum. Huldukona laðaði til sín stúlkubarn. Tundurdufl velktist um í fjörunni og heimafólk flúði í skjól. Unglingurinn sem mætti í skólann á varðskipi.

Harmþrungnar, glaðbeittar og sumpart ævintýralega fjarstæðukenndar frásagnir af fólki sem átti það sameiginlegt að velja sér búsetu á einum afskekktasta og harðbýlasta stað landsins.

Reynir Traustason skrifaði bókina á árunum 2019-2025. Hún byggir á fjölda viðtala, bréfaskriftum og rituðum útgefnum heimildum um líf og starf í vitanum og nágrenni hans. Reynir sameinar reynslu sína úr fjölmiðlum og af gönguferðum og fararstjórn um fjöll og firnindi.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Fólkið í vitanum: Gleði og sorgir í Hornbjargsvita”

Tengdar bækur

Þorpið sem svaf
3.190 kr.
Fólk á fjöllum eftir Reyni Traustason
5.990 kr.
1.455 kr.
3.635 kr.
2.065 kr.
9.290 kr.
3.190 kr. – 4.090 kr.
3.890 kr.
4.490 kr.
4.290 kr. – 4.990 kr.
6.790 kr.
2.690 kr.
4.090 kr.
2.690 kr.

INNskráning

Nýskráning