Lausaletur
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2025 | 309 | 4.990 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 4.290 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Innbundin | 2025 | 309 | 4.990 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 4.290 kr. |
Um bókina
Regnið steypist yfir borgina og fáir eru á ferli. Það hefur ekki sést gestur á prentsafninu vikum saman. Björn og Írena drekka kaffi, endurraða í safnbúðinni og dytta að vélunum. Nágrannakötturinn kemur inn úr rigningunni, það er hápunktur dagsins. Þau spjalla og drekka kaffi, hundsa draugaganginn í prentvélunum og bæla niður langanir og eftirsjá, einsemd og ótta. Þessi heimsfaraldur er allt öðruvísi en sá síðasti. Írena hugsar um eiginkonuna sem sjúkdómurinn hrifsaði, Björn hefur á tilfinningunni að þetta hafi allt gerst áður. Nú kemur nágrannakötturinn inn úr rigningunni. Einhvers staðar þarna úti er óvæntur gestur á leiðinni, einmitt í dag, þegar borgin stendur á heljarþröm.
Lausaletur er magnþrungin skáldsaga um vinnuhjónaband, heimsendi og prentsögu.

















5 umsagnir um Lausaletur
Fanney Benjaminsdottir –
„… spennandi … glettinn stíll Þórdísar vekur lesendur gjarnan til umhugsunar.“
Anna María Björnsdóttir / RÚV
Fanney Benjaminsdottir –
Snædís Björnsdóttir / Morgunblaðið
Fanney Benjaminsdottir –
„… ljóðræn, djúpstæð og heillandi saga …”
Hólmfríður María Bjarnardóttir / Heimildin
Fanney Benjaminsdottir –
„… rekur sig lag fyrir lag í gegnum þéttvafinn þráð atburða, endurtekninga og frásagna, hugsana og vona, til að skapa umvefjandi og heilsteyptan reynsluheim sem gleypir mann með húð og hári … Ef ég gæfi stjörnur fengi þessi 6.”
Sjöfn Asare / Lestrarklefinn
Fanney Benjaminsdottir –
„Þetta er svo metnaðarfullt … mér finnst þetta mjög skemmtileg bók.”
Ingibjörg Iða Auðunsdóttir / Kiljan