Armeló
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 373 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 373 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Armeló er margslungin og áhrifarík skáldsaga sem tekst á við áleitnar spurningar um sjálfsmynd, samkennd og svik.
Elfur hatar að ferðast. Einhverra hluta vegna er hún nú samt komin hingað, í þennan smábæ úti í rassgati, í hitabylgju, með Birgi. Nema hvað Birgir er allt í einu horfinn, ásamt bílnum og öllum farangrinum. Hún skilur þetta ekki, hann er ekki beinlínis hvatvís. Reyndar hefur framtaksleysið alltaf verið límið í hjónabandinu – og kannski er það af einskæru framtaksleysi sem Elfur ákveður, frekar en að takast á við aðstæðurnar, að ganga beint af augum út í skóg.
Birgir er breyttur maður eftir að hann byrjaði að vinna hjá Nanoret, sprotafyrirtæki sem stefnir á að lækna alla augnsjúkdóma veraldar. Og það var eitthvað sem hann sagði kvöldið sem þau rifust í fyrsta skipti. Kvöldið áður en þau komu til Armeló.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
5 umsagnir um Armeló
embla –
„Hún heillaði mig upp úr skónum.“
Ingibjörg Iða Auðunardóttir / Kiljan
embla –
„Stór og mikil skáldsaga.“
Egill Helgason / Kiljan
embla –
„Armeló er feikilega vel skrifuð bók, frumleg, og, eins og áður segir, óvænt.“
Snædís Björnsdóttir / Morgunblaðið
embla –
„… hrífandi ferðasaga um króka og kima sálarlífsins. Verkið sannar það, sem ég þóttist vita, að Þórdís Helgadóttir er ein af framúrskarandi röddum skálda af yngri kynslóðinni og verður gaman að fylgjast með rithöfundarferli hennar blómstra.“
Kristín María Kristinsdóttir / Víðsjá
embla –
„Með Armeló stimplar Þórdís Helgadóttir sig rækilega inn í íslenska bókmenntasenu sem frábærlega fær skáldsagnahöfundur.“
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir / Heimildin