Skuggabörn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2005 715 kr.
spinner

Skuggabörn

715 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2005 715 kr.
spinner

Um bókina

Fíkniefnaneysla er eitt helsta vandamál samfélagsins. Allir vita það en samt veit enginn neitt. Milli hins venjulegu borgara og fíkilsins er dregin ósýnileg lína. Báðir tilheyra sama heimi, samt eru þeir staddir hvor í sinni vídd. Reynir Traustason steig yfir þessi mörk. Hann hitti þá sem viðhalda hringekju fíknarinnar, allt frá smásölum til stórinnflytjenda, handrukkara, örvinglaðra foreldra langt leiddra fíkla og reyndi á sjálfum sér hvað það er að standa í sporum eiturlyfjasmyglara. Hann gekk með skuggabörnunum niður í dýpstu myrkur þar sem neysla leiðir til glæpa, þar sem glæpir ala af sér ofbeldi og ofbeldi skapar örvæntingu sem dauðinn einn virðist geta linað. Þetta er sönn bók um sanna atburði – og þeir eru að gerast núna.

Reynir Traustason er höfundur metsölubókanna Sonja – líf og leyndardómar Sonju W. Benjamínsson og Linda – ljós og skuggar.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning