Fárviðrið
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 418 | 4.390 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 418 | 4.390 kr. |
Um bókina
Þegar sæfarinn og ævintýramaðurinn Jem Rosco birtist óvænt í bænum Greystone í Devon vekur það óskipta athygli. En skömmu síðar hverfur hann sporlaust. Lík hans finnst í litlum báti undan Scully Cove, vík sem er sveipuð þjóðsagnakenndri dulúð. Rannsókn málsins reynist rannsóknarlögreglumanninum Matthew Venn erfið vegna fortíðar hans í Greystone.
Þegar annað lík finnst þarf Venn að horfast í augu við myrk leyndarmál samfélagsins. Brátt verður ljóst að enginn er óhultur fyrir ískyggilegum afleiðingum af þeim.
Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Verðlaunabækur hennar um lögregluforingjana Jimmy Perez (Shetland) og Veru Stanhope hafa notið mikilla vinsælda. Fárviðrið er þriðja bókin í bókaflokki Cleeves um lögregluforingjann Matthew Venn. Fyrri bækurnar í seríunni, Fuglinn í fjörunni og Kvein gráhegrans fengu frábærar viðtökur.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar