Harðjaxlinn ljúfi: ævisaga Óla Þórðar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 296 7.490 kr.
✓
spinner

Harðjaxlinn ljúfi: ævisaga Óla Þórðar

7.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 296 7.490 kr.
✓
spinner

Um bókina

Mesti harðjaxl íslenskrar fótboltasögu tekur til máls! Frá fjörugri barnæsku á Neðri-Skaga, til viðureigna við bestu knattspyrnumenn heims hefur Óli Þórðar farið sínar eigin leiðir af einurð, heiðarleika og óbilandi keppnisskapi, jafnt innan vallar sem utan. „Ósvikin, beinskeytt og bráðskemmtileg saga!“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari

Í þessari einstöku ævisögu segir Óli frá knattspyrnuferlinum sem leikmaður og þjálfari, sigrunum, vonbrigðunum, fórnunum og því sem hefði getað orðið. Ótrúlegar sögur úr boltanum eru á hverju strái en jafnframt veitir hann einlæga og hispurslausa innsýn í líf sitt og fjölskyldu sinnar.

Söguna auðga jafnframt litrík viðtöl við fjölmarga samferðamenn Óla.

„Óli er heilsteypt manneskja og frábær karakter, skemmtilegur orðhákur og alltaf rífandi kjaft.“

Guðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Uppgjöf og aumingjaskapur eru ekki til í orðabók Óla Þórðar. En örfá blótsyrði!“

Þorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Það er langt síðan ég hef haft jafngaman að ævisögu íþróttamanns. Ég hló stundum upphátt, t.d. þegar Óla þótti nóg um „óhemjuskapinn“ hjá konu sinni á fæðingardeildinni og fór að líkja sársaukanum við barnsburðinn við einhver fótameiðsli sem hann spilaði í gegnum! Kannski líkaði mér bókin líka svona vel vegna þess að ég hef alltaf borið ótakmarkaða virðingu fyrir dugnaði. Og af honum var nóg hjá Óla og hans ætt. Líklega fullmikið. Síðan er bókin einhvern veginn sönn. Sýnir Óla vissulega sem harðjaxl, sem hann var, en samt ber öllum saman um gott hjartalag hans.“

Ólafur Garðarsson hrl. og umboðsmaður knattspyrnumanna

„Óli Þórðar er heilsteypt manneskja og frábær karakter, skemmtilegur orðhákur og alltaf rífandi kjaft!

“

Guðni Bergsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Uppgjöf og aumingjaskapur er ekki til í hans orðabók. En örfá blótsyrði!

“

Þorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður

„Það er langt síðan ég hef haft jafngaman að ævisögu íþróttamanns. Ég hló stundum upphátt, eins og þegar Óla þótti nóg um „óhemjuskapinn“ hjá konu sinni á fæðingardeildinni og fór að líkja sársaukanum við barnsburðinn við einhver fótameiðsli sem hann spilaði í gegnum! Kannski líkaði mér bókin líka svona vel vegna þess að ég hef alltaf borið ótakmarkaða virðingu fyrir dugnaði og af honum var nóg hjá Óla og hans ætt. Bókin sýnir Óla vissulega sem harðjaxl en samt ber öllum saman um gott hjartalag hans.“

Ólafur Garðarsson, hrl. og umboðsmaður knattspyrnumanna

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Harðjaxlinn ljúfi: ævisaga Óla Þórðar”

Tengdar bækur

4.090 kr.
4.390 kr.
2.990 kr. – 4.890 kr.
2.990 kr.
1.790 kr.
4.590 kr.
Davíð Wunderbar - kápa #5.indd
4.490 kr.
8.490 kr.
4.090 kr.
Original price was: 3.790 kr..Current price is: 3.222 kr..

INNskráning

Nýskráning