Jónína Leósdóttir

Bók Jónínu kemur út í Búlgaríu

Gengið hefur verið frá réttindasölu á skáldsögu Jónínu Leósdóttur, Allt fínt … en þú?, til forlagsins Black Flamingo í Búlgaríu. Áður en bókin kom út hér á landi hafði rétturinn einnig verið seldur til forlags Kiepenheuer und Witsch  í Þýskalandi. Sagan segir frá nokkrum mánuðum í lífi tæplega fertugrar konu í Reykjavík. Konu sem kann ekki að segja nei og vill svo gjarnan vera góð við alla … og hættir þess vegna til að vanrækja sjálfa sig. Hér er á ferðinni bráðfyndin saga um grafalvarlega málefni sem geta komið upp í hvaða fjölskyldu sem er.

INNskráning

Nýskráning