Bókabíó – Blóð hraustra manna

Í tilefni af útkomu bókarinnar Blóð hraustra manna eftir Óttar Norðfjörð verður bókabíó í Laugarásbíói kl. 17.30 í dag. Bók Óttars er sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Borgríkis frá 2011. Því verður boðssýning á myndinni fyrir áhugasama og bíógestir fá aukinheldur popp og kók. Bók Óttars verður á sérlegu tilboðsverði og hann mun segja stuttlega frá tilurð hennar. Munstrið ykkur hér, ef þið hafið áhuga á að mæta.



INNskráning

Nýskráning