Bókaverðlaun barnanna

Bækurnar Núll núll níu eftir Þorgrím Þráinsson og Stórskemmtilega stelpubókin eftir Andrea J. Buchanan hlutu á dögunum Bókaverðlaun barnanna. Almenningsbókasöfn landsins veita verðlaunin ár hvert en í dómnefnd þeirra eru börn á aldrinum 6-12 ára sem velja sínar uppáhaldsbækur á heimasíðu Borgarbókasafnsins, og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Við óskum Þorgrími og Höllu Sverrisdóttur, þýðanda Stórskemmtilegu stelpubókarinnar, hjartanlega til hamingju.

INNskráning

Nýskráning